-
Hæ Natalía frænka! Mikið voðalega ertu langt í burtu. Endilega segðu mömmu þinni og pabba að setja inn nýjar myndir af þér svo við hér í Kanada getum séð þig. Flosi er í fimleikum eins og þú. Honum finnst skemmtilegast á jafnvægisslánni en fer líka á trampolín og í svampagryfjuna. Nú er hann og Jakob hins vegar steinsofandi uppi á meðan ég skrifa þér og borða kex. Bestu kveðjur, Þín frænka AuðurAuður|28.1.2010 04:34:10
-
Kæru vinir. Gleðilegt nýtt ár með þakklæti fyrir gamla ári sem nú hefur kvatt. Þúsund þakkir fyrir jólakorti, ekkert smá dásamleg mynd af Natalíu skottu. Megi nýja árið færa ykkur gleði og hamingju. Kv. Elín og fjölskylda.Elín Henriksen|1.1.2010 18:05:13
-
Elsku vinir. Gleðileg jól og farsæl komandi ár. Takk fyrir allar góðar stundir á líðandi ári. Hafið það sem best yfir hátíðarnar. Jólakveðja, Kitta, Svenni og Elísabet Xiang :) ps. er ekki kominn tími á fleiri myndir frá ykkur hér inn?? ;)Kitta & co|25.12.2009 12:09:18
-
Óskum ykkur öllum Gleðilegra Jóla og farsæls komandi nýs árs, þökkum frir góðar stundir... vonandi náum i að hittast á komandi mánuum... knús og kossar Hilmar Geir og mammaHilmar Geir og Mamma|24.12.2009 15:48:43
Halló fallegi ungi :-) Til hamingju með samveruafmælið ykkar, þetta eru svo stórir og yndislegir dagar sem fá mann til að rifja upp ferðalagið stóra út í heim. Þú ert flottur stór ungi :-) Kv. ElínElín Henriksen | 0 | 5.9.2009 12:36:12 #
-
Aldeilis flottar myndir af æðislegri stelpu :) Takk fyrir sundferðina í gær - voða gaman - mæli með fleiri svona ferðum ;) Bestu kv. Kitta og Elísabet Xiang :)Kitta|23.7.2009 05:53:22
-
Takk fyrir síðast. Flottar myndir af kerlingunum okkar. PálínaPálína|22.7.2009 21:31:05
Hæ, hæ. Yndislega Natalía, þú ert nú meiri grallarinn og gaman að skoða myndirnar af þér. Bestu kveðjur á bæinni og sjáumst fljótlega. Kv. Elín og co.Elín Henriksen | 0 | 11.7.2009 23:37:20 #
Er búin að sitja og lesa vefdagbókina síðan þið fenguð upplýsingarnar um Natalíu og skoða myndir. Ég fylgdist svo vel með á þessum tíma og langaði aðeins að rifja upp ferðalagið ykkar áður en ég legg af stað í mitt stærsta ferðalag:) Æðislegar nýju myndirnar af dömunni. Bestu kveðjur JanaKristjana | 0 | 24.5.2009 20:13:54 #
Takk fyrir síðast kæru vinir. Með eindæmum flottar stelpur. Svo gaman að sjá þær saman. Pálína og co.Pálína | 0 | 14.4.2009 13:05:02 #
-
Elsku vinir. Hjartanlega til lukku með afmæli heimasætunnar þótt seint sé...hef góða afsökun..hehehe. Gaman að lesa um afrek dömunnar og að sjá hvað hún hefur þroskast mikið þennan tíma sem hún hefur verið hjá ykkur. Kv. Elín, Bjarni og börnElín og co|6.4.2009 18:38:37
-
Halló flotta 3 ára stelpa !!! Mikið var nú gaman að líta hér við eftir langan tíma :). Þú ert flott Natalía! Kær kveðja, Matti og mamma hans.Helga mamma Marteins Cheng|5.4.2009 19:56:28
-
Halló yndislegi gleðigjafi Sendum þér síðbúnar afmæliskveðjur með þriggja ára afmælið, skammarlegt hvað við höfum verið ódugleg að líta hér við. Greinilegt að þú hefur átt yndislegan afmælisdag, fengið fullt af knúsi, kræsingum og flottum gjöfum. Geggjum lopapeysan þín og þú ekkert smá fullorðin í henni. Knús og kveðjur, Anna Bíbí og mammanSigurbjörg K. Jónsdóttir|3.4.2009 22:30:55
Takk fyrir síðast. Flottar myndir af yndislegri stelpu. Pálína og coPálína | 0 | 30.3.2009 21:49:27 #
Til hamingju með daginn Natalía og foreldrar. Hún er svo flott þessi stelpa og búið að vera sérlega gaman að fylgjast með henni dafna og þroskast. Eigið góðan dag :) Kærar kveðjur Birna og coBirna Blöndal | 0 | 24.3.2009 14:26:07 #





